Pabbi, Halldór Sigurðsson, var fæddur 1920. Foreldrar hans voru Elísabet Jónsdóttir Fjeldsted og Sigurður Kristjánsson. Systkin voru Guðrún (Gunna Beta), Kristján og Jensína.
Pabbi var sjómaður alla tíð, nema síðustu árin, þar sem hann vann à kassaloftinu í fiskiðjunni. Hann átti lengi vel trillur með Agli Kristjánssyni, Einar ÌS 579 var einn þeirra báta.
Hann hafði gaman af alls kyns útskurði og var snillingur á vélar. Hann hafði „pungapróf“ frá Þingeyri, eins og Stjáni bróðir hans.
Hann las mikið fyrir okkur mömmu à kvöldin, eins og Mannamun og Pilt og stùlku. Hann las líka einstaklega vel söguna um Bör Börsson og var mikið hlegið.
Pabbi var mikill öðlingur og góður pabbi. Hann bar mig í skólann í vondum veðrum og oft laumaði einhver lítilli hendi í lófann hans á leiðinni.
Mamma, María Guðný Guðríður Oddsdóttir (lítil manneskja með stórt mafn), fædd 1910, þekkt sem Maja Odds, var húsmóðir og vann seinna meir í frystihúsinu à Suðureyri.
Foreldrar hennar voru Oddur Oddsson frà Snæfellsnesi og Halldóra Geirmundsdóttir. Systkini hennar voru Jón Guðni (pabbi Sólbergs sparisjóðsstjóra à Suðureyri), Guðný Ólafía, Soffía Kristmanía (mamma Hansínu Jónasar) og 4 systkin sem dóu ung.
Mamma hafði gaman af kvæðum og samdi mörg sjálf. Eftir að pabbi dó og hún flutti til okkar í Mývatnssveit sat hún löngum stundum úti á verönd og reykti. Handan kvosarinnar var leikskóli og kennararnir þar sögðu mér seinna að þeir hefðu sett klukkuna eftir henni því hún kveikti í sígarettunni klukkan nákvæmlega tvö.Guðríður Gyða Halldórsdóttir.